ÁSAR
EN

Nýtt afl á markaði

Ásar eru vaxandi samstæða á sviði stafrænnar þjónustu á Íslandi. Stærstu eignir Ása eru Síminn, Öryggismiðstöðin, OK, Billboard og Greiðslumiðlun Íslands.

Fyrirtækin okkar

Í eignasafni Ása eru brautryðjandi þjónustufyrirtæki sem byggja á stafrænum grunni, trausti og öryggi.

Síminn

Síðan 1906 hefur Síminn verið í stöðugri nýsköpun og tengt íslenskt samfélag bæði innbyrðis og við umheiminn. Markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu sem byggir á traustum grunni, öflugum innviðum og reynslumiklu starfsfólki.

Öryggismiðstöð Íslands

Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar öryggis- og velferðarlausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

OK

OK er eitt öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins og sinnir rekstrar- og hýsingarþjónustu, búnaðarsölu og hugbúnaðarlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Greiðslumiðlun Íslands

Greiðslumiðlun Íslands er öflug fjártæknisamstæða á sviði kröfuþjónustu, innheimtu og greiðsluþjónustu sem rekur vörumerkin Motus og Pei.

Síminn Pay

Síminn Pay býður upp á fjártæknilausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki með það að markmiði að auka sveigjanleika í fjármálum og bæta skilvirkni í rekstri.

Noona Iceland

Noona Iceland rekur stærsta markaðstorg landsins, Noona, sem tugþúsundir Íslendinga nýta í hverjum mánuði til að bóka og greiða fyrir þjónustu af fjölbreyttu tagi.

Billboard

Billboard færir þín skilaboð til fjöldans. Vandaðar og sérsniðnar auglýsingalausnir á umhverfismiðlum sem tryggja einstakan sýnileika og skila á sama tíma ábata fyrir nærumhverfið á vönduðum og umhverfisvænum LED-skjáum. Billboard er rekstraraðili biðskýla strætisvagna á höfuðborgasvæðinu og víðar um landið.

Radíómiðun

Radíómiðun sérhæfir sig í öruggum fjarskiptalausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir um allt land. Áhersla er lögð á traustar sérsniðnar lausnir fyrir krefjandi rekstur jafnt á sjó sem landi við íslenskar aðstæður.

Fjárhagsdagatal

Félagið mun halda aðalfundi og birta árshluta- og ársuppgjör samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali.

16.02.2027

Ársuppgjör 2026

11.03.2027

Aðalfundur 2027

Sjá fjárfestatengsl