Ertu morgunhress og leitar að skemmtilegu starfi? Ásar leita að duglegum og hressum einstaklingi í mötuneyti fyrirtækisins. Starfið felur í sér umsjón með salatbar, aðstoð við matseld ásamt undirbúningi og frágangi í kringum morgun- og hádegisverð. Vinnutíminn er frá 07:00-15:00 alla virka daga. Leitað er að einstaklingi í framtíðarstarf.
Helstu verkefni
- Áhugi á mat og matargerð er mikill kostur
- Góður liðsfélagi með mikla aðlögunarhæfni
- Góðir samskiptahæfileikar
- Framúrskarandi þjónustulund
- Stundvísi og reglusemi
Ásar eru leiðandi samstæða á sviði stafrænnar þjónustu á Íslandi. Stærstu eignir Ása eru Síminn, Billboard og Greiðslumiðlun Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2026.
Við metum umsóknir jafnóðum og þær berast og boðum í viðtöl eftir því sem við á. Ráðið verður í starfið þegar við finnum rétta einstaklinginn í hlutverkið.
Í anda jafnréttisstefnu Ása hvetjum við öll kyn til að sækja um.
Tengiliðurmannaudur@asar.is