Billboard og Buzz leita að laghentum og öflugum starfsmanni til liðs við framkvæmdasvið fyrirtækisins.
Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í góðum hópi þar sem verkefnin eru bæði krefjandi og skemmtileg.
Starfið felst meðal annars í uppsetningu, viðhaldi og þjónustu við biðskýli, auglýsingaskilti og annan búnað á vegum fyrirtækisins. Einnig felur starfið í sér almenna tæknivinnu og úrlausn fjölbreyttra verkefna sem tengjast rekstri götugagna.
Requirements
- Handlagni og góð almenn tæknikunnátta
- Reynsla af verklegum störfum er kostur
- Þekking á rafmagni og/eða tæknibúnaði er mikill kostur
- Vinnuvélaréttindi eru kostur
- Jákvætt hugarfar, sjálfstæði og góð hæfni í teymisvinnu
Billboard færir þín skilaboð til fjöldans. Vandaðar og sérsniðnar auglýsingalausnir á umhverfismiðlum sem tryggja einstakan sýnileika og skila á sama tíma ábata fyrir nærumhverfið á vönduðum og umhverfisvænum LED-skjáum. Billboard er rekstraraðili biðskýla strætisvagna á höfuðborgasvæðinu og víðar um landið.
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2026.
Við metum umsóknir jafnóðum og þær berast og boðum í viðtöl eftir því sem við á. Ráðið verður í starfið þegar við finnum rétta einstaklinginn í hlutverkið.
Í anda jafnréttisstefnu Ása hvetjum við öll kyn til að sækja um.