ÁSAR
EN
Til baka

Starfsmaður á framkvæmdasviði Billboard

Umsóknarfrestur til 22.11.2026

Sækja um starf

Billboard og Buzz leita að laghentum og öflugum starfsmanni til liðs við framkvæmdasvið fyrirtækisins.

Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í góðum hópi þar sem verkefnin eru bæði krefjandi og skemmtileg.

Starfið felst meðal annars í uppsetningu, viðhaldi og þjónustu við biðskýli, auglýsingaskilti og annan búnað á vegum fyrirtækisins. Einnig felur starfið í sér almenna tæknivinnu og úrlausn fjölbreyttra verkefna sem tengjast rekstri götugagna.

Hæfniskröfur

  • Handlagni og góð almenn tæknikunnátta
  • Reynsla af verklegum störfum er kostur
  • Þekking á rafmagni og/eða tæknibúnaði er mikill kostur
  • Vinnuvélaréttindi eru kostur
  • Jákvætt hugarfar, sjálfstæði og góð hæfni í teymisvinnu

Billboard færir þín skilaboð til fjöldans. Vandaðar og sérsniðnar auglýsingalausnir á umhverfismiðlum sem tryggja einstakan sýnileika og skila á sama tíma ábata fyrir nærumhverfið á vönduðum og umhverfisvænum LED-skjáum. Billboard er rekstraraðili biðskýla strætisvagna á höfuðborgasvæðinu og víðar um landið.

Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2026.

Við metum umsóknir jafnóðum og þær berast og boðum í viðtöl eftir því sem við á. Ráðið verður í starfið þegar við finnum rétta einstaklinginn í hlutverkið.

Í anda jafnréttisstefnu Ása hvetjum við öll kyn til að sækja um.

Tengiliðurmannaudur@asar.is